Primordial Saint

‹ Öll verkefni

Gagnabanki · Annað

Fab Academy 2018

Hálfs árs nám í stafrænni framleiðslu, eitt nýtt tæki eða ný tækni í hverri viku, frá geislaskera til rafeindahönnunar.

Myndir úr nokkrum vikum Fab Academy: smellubox, prentplata, mót og trefjaplast

Fab Academy er alþjóðlegt nám í stafrænni framleiðslu („How to Make (Almost) Anything“) sem Neil Gershenfeld hjá MIT stýrir. Ég tók það árið 2018 í Fab Lab Reykjavík með Lindu sem leiðbeinanda og Bas sem tæknilegan bakhjarl.

Ég hef verið kennari í Fab Lab Reykjavík síðan í ágúst 2017 og hef komið þangað síðan 2014. Ég fór í námið til að verða betri í að kenna öðrum og til að kafa í hluti sem ég hafði ekki prófað áður, sérstaklega rafeindatækni.

Lokaverkefnið: Anti-Soggy Cereal Spoon

Vikurnar

Hver vika er tengill á upprunalegu skjölunina (á ensku).

Vika Efni Hvað ég gerði
1 Principles and Practices Fyrsta hugmynd að lokaverkefni: stórt skrifborð með hæðarstillingu.
2 Project Management Git, GitLab og fyrsta vefsíðan, smíðuð í Brackets.
3 Computer-Aided Design Breytustýrð hönnun á skrifborðinu í Fusion 360.
4 Computer-controlled Cutting Geislaskeri: skurðbreidd (~0,2 mm) og hraðaprófanir; vínylskeri.
5 Electronics Production Fræsing á prentplötum í Roland Modela og lóðun.
6 3D Scanning & Printing Prófanir á Makerbot og Ultimaker 3, PVA-stuðningsefni og þrívíddarskönnun.
7 Electronics Design Hello world spjald hannað í Eagle og sveiflusjá.
8 Computer-Controlled Machining ShopBot: hjólabrettastandur með smellusamskeytum.
9 Embedded Programming ATtiny44 forritaður með Arduino.
10 Molding & Casting Mót fræst og „Replicator“ úr Stargate steypt.
11 Input Devices Snertisleði úr koparlímbandi og Python-viðmót.
12 Output Devices DC-mótorstýring, fyrsta skrefið að dælunni.
13 Interface and Application Python-viðmót sem talar við takka á spjaldi.
14 Networking & Communications I²C á milli hröðunarmælis og ATtiny44.
15 Mechanical Design Handy McHandface, hópverkefni.
16 Machine Design Handy McHandface stýrt með PS4-fjarstýringu.
17 Wildcard Week Trefjaplast: froða fræst í ShopBot og klædd með striga og epoxý.
18 Applications and Implications Áætlun fyrir lokaverkefnið.
19 Invention, IP and Income CC BY-SA leyfi og lokaverkefnið.

Myndir úr náminu

Vika 4: geislaskorið smellubox Vika 7: hello world spjald Vika 6: prófanir á þrívíddarprentara Vika 10: mót og steypa Vika 12: mótorstýring Vika 17: trefjaplast

Hvað ég lærði

Ég læri með því að gera. Veiku hliðarnar mínar voru rafeindatækni og agi í skjölun, en í lok námsins gat ég smíðað rafeindatækni frá grunni og fór úr byrjanda í lengra kominn í Fusion 360, sérstaklega í breytustýrðri hönnun. Mikilvægast af öllu: að geta kennt öðrum það sem ég lærði.

Upprunalega Fab Academy síðan mín