Gagnabanki · CNC
Hjólabrettastandur
Stór smellusamsettur standur fyrir hjólabretti, fræstur í ShopBot án skrúfa eða líms.

Verkefnið mitt í viku 8 í Fab Academy 2018 („Make something big“). Upprunalega skjölunin (á ensku).
Hvað er þetta?
A-laga standur fyrir hjólabretti, eingöngu haldið saman með smellusamskeytum. Hann stendur á samskeytunum einum saman.

Hvernig?
- Hönnun: Fusion 360, breytustýrt eftir efnisþykkt, með Dogbone viðbótinni fyrir innri horn
- CAM: 2D contour í Fusion: niðurfræsitönn fyrir fyrri umferð og einnar rásar uppfræsitönn fyrir síðustu 10 mm, með festiflipum
- Vél: ShopBot
- Efni: viðarplata úr afgöngum í smiðjunni

Hvað fór úrskeiðis?
- Á sumum stöðum skildi fræsingin eftir ~0,01 mm og ég þurfti að skera hlutina lausa með dúkahníf. Næst læt ég fræsa aðeins niður í fórnarplötuna.
- Ég notaði 3 mm skref niður en hefði getað notað þvermál fræsitannarinnar (6,3 mm) og sparað tíma.
- Dogbone verður að vera síðasta aðgerðin í tímalínunni, annars ruglast hönnunin þegar eitthvað er lagað fyrr.